Norræni fulltrúaráðsfundur ELSA 2025 Reykjavík
ELSA Ísland stóð fyrir viðburðinum Norræna fulltrúaráðsfundi ELSA (e. Nordic Officers‘ Meeting – NOM) í fyrsta sinn hér á landi dagana 31. október-2. nóvember 2025. Norræni fulltrúaráðsfundurinn, sem fer fram ár hvert að hausti, er samráðs- og samstarfsvettvangur Norrænna aðildarfélaga ELSA. Var þetta eitt umfangsmesta og fjölmennasta laganemamót sem hefur farið fram á Íslandi, þar sem um 100 þátttakendur sóttu fundinn.
Norræni fulltrúaráðsfundurinn er einn af helstu viðburðum ELSA, þar sem Norrænir laganemar koma saman og ræða stefnu samtakanna og náið samstarf Norrænu ELSA félaganna. Dagskrá fundarins var vegleg en hún samanstóð meðal annars af fyrirlestrum, þverfaglegum vinnustofum, marghliða- og tvíhliða samráðsfundum.
Degi fyrir upphaf viðburðarins fengu þátttakendur tækifæri til að heimsækja gullna hringinn á Suðurlandinu. NOM hófst með veglegri setningarhátíð sem fór fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Dagskráin var kynnt fyrir þátttakendum og þeir boðnir velkomnir til Íslands. Jónsbók, einn af helstu styrktaraðilum viðburðarins, bauð síðan þátttakendum í móttöku í höfuðstöðvum sínum við Lágmúla. Um kvöldið var hrekkjavökuskemmtun á Bird, skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Á laugardeginum fóru fram margvíslegar vinnustofur og fundir í Veröld, hús Vigdísar við Háskóla Íslands. Thelma Christel Kristjánsdóttir, ein af fyrirsvarsmönnum Jónsbókar, hélt jafnframt einn fyrirlestur fyrir þátttakendur um notkun gervigreindar í lagaheiminum. Í kjölfar fundarhaldanna var haldinn gala viðburður í Hallveigarstöðum. Síðasti dagur NOM hófst með skoðunarferð um miðbæ Reykjavíkur sem endaði í Norræna húsinu.
Viðburðurinn gekk vel í alla staði og staðfesti getu ELSA Ísland til að standa að umfangsmiklum alþjóðlegum viðburðum með faglegum hætti. Velgengni viðburðarins skapar jafnframt traustan grundvöll fyrir áframhaldandi þátttöku og samstarf innan norræns og alþjóðlegs samstarfs laganema. Alþjóðastjórn ELSA var einnig viðstödd á viðburðinum og markaði það
ELSA Ísland færir samstarfs-og styrktaraðilum NOM 2025 innilegar þakkir fyrir stuðninginn við viðburðinn. Helstu styrktaraðilar NOM 2025 Reykjavík eru ADVEL, Jónsbók, Mörkin, Reykjavíkurborg, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Juris og BIOEFFECT.
Stuðningur samstarfs- og styrktaraðila NOM 2025 skipti sköpum fyrir framkvæmd viðburðarins og með þeirra aðstoð gat ELSA Ísland tryggt þátttakendum eftirminnilega upplifun hér á Íslandi.
NOM 2025 markaði jafnframt tímamót fyrir ELSA Ísland. þar sem þetta var í fyrsta sinn sem fundurinn var haldinn á Íslandi. Við erum afar þakklát fyrir það traust sem okkur var sýnt og fyrir gott samstarf við alla þá aðila sem lögðu sitt af mörkum til að gera viðburðinn að veruleika.
Skipulagsnefnd NOM 2025 Reykjavík:
Formenn skipulagsnefndarinnar: Aníta Lind Hlynsdóttir og Sverrir Páll EinarssonFjármálastjóri: Bjarki Fjalar GuðjónssonUmsjónarmaður aðstöðu: Mira WoelfertFerlastjóri: Þóra ÞórðardóttirSkemmtanastjóri: Einar Valur Karlsson

